Glæpur og refsing í Elliðaárdalnum
Vissir þú að ungri konu var drekkt í Drekkjarhyl og að kokkálaður bóndi var myrtur við Skötufoss? Þekkir þú til Elliðaármálanna þar sem menn læddust um í skjóli nætur og eyðilögðu laxakistur Thomsen kaupmanns?
Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur og rithöfundur býður upp á annars vegar styttri leiðsögn – 1 klst. – og hins vegar lengri leiðsögn – 2 klst. – um Elliðaárdalinn og fjallar um glæp og refsingu ásamt öðrum fróðleik um dalinn fagra.
Ummæli þátttakenda:
- Ég hef farið í þessa göngu með Eyrúnu og hún var æðisleg.
- Eyrún er svo fróð og skemmtileg og ég bíð eftir fleiri sögugöngum.
- Nú verður horft með öðrum augum og umhverfið sett í víðara samhengi
- Hún var bæði skemmtileg og fræðandi
Boðið er upp á sérstakar göngur fyrir starfsmannahópa og aðra hópa á kr. 66.600,- m/vsk fyrir styttri göngu eða kr. 88.800,- m/vsk fyrir lengri göngu. Einstaklingar greiða kr. 3.330,- m/vsk. Vinsamlegast gr. á reikning Skáldasýslunnar; 133-26- 015504, KT: 441023-0810.
Lagt er af stað frá veitingastaðnum Elliða, við Elliðaárstöð (sem er staðsettur inn á milli hvítu húsanna með rauðu þökunum).
Næstu göngur
-
Laugardaginn 25. apríl kl. 10.00-12.00
-
Laugardaginn 16. maí kl. 10.00-12.00
-
Miðvikudaginn 20. maí kl. 16.30-18.30
-
Fimmtudaginn 11. júní kl. 16.30-18.30
Einnig er hægt að kaupa gjafabréf í vefverslun.
Skráning hér
——
Síðustu ár hefur Eyrún farið í ferðir sem tengjast sögulegum skáldsögum sem hún hefur skrifað, bæði í uppsveitir Árnessýslu og á Eyrarbakka. Þá hefur hún farið á slóðir síðustu aftökunnar í Húnavatnssýslu. Vorið 2024 hóf hún að fara með hópa í sögugönguna „Glæpur og refsing í Elliðaárdalnum“ sem notið hefur mikilla vinsælda.
Viðtal við Eyrúnu um gönguna í Morgunblaðinu 31. ágúst 2024 er hér til hliðar.
Aðrar söguferðir
Ferð á slóðir síðustu aftökunnar í Húnavatnssýslu.
„Konan sem elskaði fossinn“ Sigríður í Brattholti – ferð um uppsveitir Árnessýslu og að Gullfossi.
Ljósmóðirin – ferð til Eyrarbakka þar sem sagt er frá sögusviði skáldsögunnar um Þórdísi Símonardóttur.