Glæpir og refsing í Elliðaárdalnum

Price range: 3.300 kr. through 6.600 kr.

Í boði er gjafabréf fyrir einn eða fyrir tvo.

Vissir þú að ungri konu var drekkt í Drekkjarhyl og að kokkálaður bóndi var myrtur við Skötufoss? Þekkir þú til Elliðaármálanna þar sem menn læddust um í skjóli nætur og eyðilögðu laxakistur Thomsen kaupmanns?

Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur og rithöfundur býður upp á leiðsögn um Elliðaárdalinn og fjallar um glæp og refsingu ásamt öðrum fróðleik um dalinn fagra.